Icelandic language translation and learning services
Þýðingarþjónusta
Við tökum að okkur að þýða öll helstu tungumál og höfum víðáttumikla reynslu af þýðingum á m.a. vefsíðum, hugbúnaði, markaðsefni, bæklingum, löggiltum skjölum, útflutningsskjölum og viðskiptagögnum fyrirtækja. Við notum einungis faglærða þýðendur með reynslu og sérþekkingu á því efni sem þýða skal og áður en textinn fer frá okkur er hann ávallt lesinn yfir af öðrum sérfræðingi í viðeigandi tungumáli.
Staðhæfing og prófarkalestur
Auk hefðbundinar þýðingarþjónustu bjóðum við upp á prófarkalestur og endurskoðun texta. Þannig getum við gert texta þinn viðeigandi fyrir hinn breska, ameríska eða alþjóðlega markað.
Túlkaþjónusta
Við bjóðum upp á túlkaþjónustu á ótal tungumálum fyrir viðskiptafundi og ráðstefnur.
Tungumálanámskeið fyrir viðskiptafólk
Í yfir tuttugu ár höfum við hjálpað viðskiptafólki allstaðar að úr heiminum að bæta tungumálakunnáttu sína. Námskeiðin okkar eru sérsniðin fyrir hvern og einn einstakling og eru haldin í tungumálamiðstöð okkar í Twyford.
Örugg gæði
Gæðakerfi RLI er vottað samkvæmt ISO 9001 og við erum eitt af fáum þýðingarfyrirtækjum sem hlotið hafa EN 15038 staðalinn, sem er eini þverevrópski þýðingarstaðallinn. Gæðaeftirlit innan fyrirtækisins er því mikið og öll ferli undir stöðugu eftirliti.
Við leggjum mikið upp úr því að stofna til langvarandi viðskiptatengsla. Meira en helmingur viðskiptavina okkar hafa notið góðs af þjónustunni í fimm ár eða lengur og sumir þeirra síðan við hófum viðskipti árið 1989.
